Leikfélagið MAS var formlega stofnað á vormánuðum 2003 og er aðili að Bandalagi íslenskra leikfélaga. Félagið hefur þó verið starfandi frá árinu 1999, þá nefnt Leikhópur Ásgarðs og sett upp eina sýningu á ári.
Leiklistarstarfsemi Ásgarðs
Í byrjun árs 1999 fengum við í Ásgarði góðan gest.
Það var sænsk kona sem heitir Nina Norén. Hún er leikkona og leikstjóri og henni tókst auðveldlega að smita okkur með leiklistarbakteríunni. Í nokkrar vikur æfði 8 manna hópur með henni leikþátt byggðan á sögu Göethes, Ormurinn græni og liljan fagra, og endaði með því að sýna hann fyrir vini og kunningja í húsi ÍTR við Fríkirkjuveg. Þetta þótti okkur alveg óskaplega skemmtilegt og alveg sjálfgefið að halda áfram að vinna með leiklist í einhverju formi. Nina lýsti áhuga á að koma aftur og setja upp allt leikritið með okkur. Allir voru spenntir. Svo fórum við til Svíþjóðar um sumarið og heimsóttum auðvitað Ninu í Lundi. Þar voru þessar hugmyndir ræddar áfram og Nina ætlaði að koma um haustið og halda áfram þar sem frá var horfið. Af því varð þó því miður ekki þar sem Nina veiktist. En við dóum ekki ráðalaus. Það sama haust kom til starfa við Waldorfskólann í Lækjarbotnum nýr söngkennari, Inga BjörkIngadóttir.Við fengum hana til að vinna með lítinn hóp frá Ásgarði tvisvar í viku með söng og leiklist. Hópurinn setti upp leikþátt úr Hobbitanum eftir J. R.Tolkien og sýndi hann í Hinu Húsinu. Eftir það vorum við beðin um að sýna leikþáttinn aftur og þá fyrir hóp erlendra gesta sem hér voru staddir til aðkynna sér menningarstarfsemi fatlaðra á Íslandi. Það er skemmst frá því að segja að þar á meðal var finnsk kona sem bauð okkur að koma til Finnlands og
sýna þar. Við sóttum um styrk til að fjármagna slíka ferð og hann fékkst. Inga Björk hélt til náms um haustið og gat þar af leiðandi ekki haldið áfram að sjá um leikhóp Ásgarðs.Það er nú alltaf svo að ef einhver góður hættir kemur annar ekki síðri í staðinn. Viðvorum svo heppin að fá til liðs við okkur leikstjóra að nafni Ingólf Árnason.Ingólfur var nýkominn heim frá námi á Ítalíu þar sem hann útskrifaðist sem leikstjóri frá Ítölsku leiklistar akademíunni. Hann byrjaði strax að vinna undirbúningsvinnuna að nýju leikriti. Eftir miklar bollaleggingar um hvaða leikrit ætti að sýna í Finnlandi ákváðu strákarnir að setja upp Hamlet og allir starfsmenn Ásgarðs tóku þátt í sýningunni á einn eða annan hátt.
Ingólfur varð strax mjög spenntur og áhugasamur um þetta verkefni og hann hefur sýnt að hann er uppspretta af hugmyndum og lausnum.
Þær sýningar sem Ásgarðshópurinn hefur sett upp frá árinu 1999 til dagsins í dag eru:
1999: Ormurinn græni og liljan fagra eftir Goëthe.
Þrjár sýningar fóru fram í Geysis húsinu sem var þá á vegum Hins hússins.
Leikstjóri var Nina Norén.
2000: Leikþáttur úr Hobbitanum eftir Tolkien.
Leikfélagið sýndi þetta verk utandyra uppí Lækjarbotnum og einnig í Geysishúsinu fyrir erlenda gesti sem hér voru staddir.
Leikstjóri var Inga Björk Ingadóttir.
2001: Hamlet eftir William Shakespeare. 
Í fyrsta skiptið var farið með sýningu frá leikfélaginu í leikhús því með góðra vina hjálp tókst að fara með leikritið í Borgarleikhúsið og var sú upplifun sem vítamínsprauta fyrir alla þá sem að leikfélaginu komu. Um sumarið fór hópurinn til Finnlands með leiksýninguna og sýndi hana á nokkrum stöðum. Leikmynd og búningar voru mjög skemmtileg þar sem aðalleikararnir voru með leðursmiðssvuntur á sér en Hamlet var með smiðsbelti á sér. Sem aðal leikmynd var notast við fimmtán stórar bláar og hvítar regnhlífar. Ófelía var smíðuð sem strengja brúða og höfuðkúpan sem Hamlet ræddi við um nóttina var einnig smíðuð úr við í Ásgarði. Leikstjóri var Ingólfur Árnason.
2002: Skírnismál úr Hávamálum.
Þetta var samstarfsverkefni leikhópsins og Waldorfskólans í Lækjarbotnum. Leiksýningin var sýnd á Broadway í tengslum við hátíðardag Ásgarðs og var félagsmálaráðherra heiðursgestur. Öll tónlist var flutt af starfsmönnum Ásgarðs og nemendum Waldorfskólans. Þessa sýningu var farið með til Svíþjóðar og hlaut hún mjög góðar viðtökur.
Leikstjóri var Ingólfur Árnason.
2003: Stutt mærðarspil um Pýramus og Þispu hans, mjög sorgleg gamansaga,
úr Draumi á Jónsmessunótt eftir William Shakespeare.
Þrjár sýningar fóru fram í Bæjarleikhúsinu í Mosfellsbæ. 
Í júní 2003 tók Leikfélagið M.A.S. þátt í samnorrænni ráðstefnu fyrir þroskaskerta í Järna í Svíþjóð. Þar sýndi félagið leikritið um Pýramus og Þispu hans. Sýningin fór fram útí skógi við veiðihöll svíakonungs. Leiksviðið var eins og William Shakespeare hafði hugsað sér nema að það var eins og hellt væri úr fötu allan tímann á meðan á leiksýningunni stóð, en leikendur létu úrhellið ekki slá sig út af laginu þó að flestir áhorfendur hafi flúið í skjól. Þetta var sú sýning sem stendur uppúr í endurminningu leikfélagsins M.A.S.
Einnig tók félagið þátt í sameiginlegri leiksýningu allra Norðurlandanna á Jónsmessuleikriti eftir Karl König, með tónlist eftir Malte Winje. Leikarar í þessari sýningu voru alls 430, frá öllum Norðurlöndunum . Félagar í M.A.S. voru í hlutverki sporðdrekans, svörtu verunnar og sungu tvö lög einir á íslensku og þrjú lög með öllum hópnum á skandinavísku.
Það er ekki ofsögum sagt að íslenski hópurinn hafi slegið í gegn í Svíþjóð og eignast marga aðdáendur á þessari ráðstefnu. Það vakti mikla athygli hve íslenski hópurinn var kraftmikill, lífsglaður, sjálfstæður og hugrakkur.
Leikstjóri var Ingólfur Árnason.
2004: Æfingar hófust á leikþætti byggðum á leikriti eftir Dario Fo (Fullt hús af þjófum)
og einnig eitt frumsamið verk (Reykjavíkur stræti) samið af leikurum leikhópsins.
2005: Fullt hús af þjófum, byggt á leikriti eftir Dario Fo,
ogReykjavíkurstræti, eftir leikara M.A.S.
Í júní 2005 tók Leikfélagið M.A.S. aftur þátt í samnorrænni ráðstefnu fyrir þroskahamlaða í Järna í Svíþjóð. Þar sýndi félagið leikþættina sína Fullt hús af þjófum og Reykjavíkur stræti, sem fjallaði um það ólánsama fólk sem hefur orðið undir í baráttunni við Bakkus.
Einnig tók leikfélagið aftur þátt í sameiginlegri leiksýningu allra Norðurlandanna á Jónsmessuleikriti eftir Karl König, með tónlist eftir Malte Winje, en notast var við sömu uppfærslu og notast var við þegar leikfélagið var þar árið 2003.
Leikstjóri var Ingólfur Árnason.
2006: Leikstjóri og leikarar hittust á haustmánuðum til að finna nýtt leikrit fyrir næsta ár. Vegna anna leikstjóra var ákveðið að finna annan leikstjóra til að vinna með leikfélaginu þetta ár. Ekki tókst að finna annan leikstjóra sem gat unnið á vinnutíma Ásgarðs svo ekki varð neitt úr leikárinu í þetta sinn.
2007: Ákveðið var að taka þátt í nýju og krefjandi verkefni og fara með leikfélagið á framandi slóðir. Ákveðið var að hefja undirbúning á leikferð til Belgíu sem farin yrði árið 2008. Leikfélagið samdi leikrit um sögu íslands og hvað það var sem mótaði okkur sem þjóð og mun leikritið heita Ísland ögrum skorið. Sviðsmyndin verður video myndir af náttúru íslands og undirspilið verður músík eftir
Björk Guðmundsdóttir, Sigur Rós, Þursaflokkinn og Steindór Andersen en allir þessir tónlistarmenn gáfu okkur leyfi til að nota þeirra músík við uppfærsluna.
2008: Ísland ögrum skorið, eftir leikfélag M.A.S.
Undirbúningur vegna Belgíuferðarinnar hófst með æfingum og þátttöku í Listum án landamæra þar sem leiksýninginÍsland ögrum skorið var sýnd í Borgarleikhúsinu.
Farið var með leiksýninguna til Belgíu í maí þar sem leikfélagið sýndi verkið á Nútíma tónlistar og menningarhátíð sem haldin var í Waregem. Einnig var farið með verkið til Beernem þar sem verndaðir vinnustaðir voru heimsóttir og settar voru upp tvær leiksýningar þar fyrir fimm verndaðir vinnustaðir og komu starfsmenn þessara staða og nutu sýningar okkar þeim að kostnaðarlausu.
Leikstjórinn var Ingólfur Árnason.
2009: Æfingar hófust á haustmánuðum á leiksýningunni Ísland ögrum skorið.
Farið var í samstarf með Leikfélagi Mosfellssveitar um að leikfélagið M.A.S fengi afnot af húsnæði leikfélags Mosfellsbæjar og í staðinn smíðaði Ásgarður hluta af leikmynd næsta verks Leikfélags Mosfellssveitar.
Eftir strangar æfingar var svo komið að því að sýna hér á heimaslóð. Laugardaginn 17.nóvember var stóri dagurinn. Fólk kom úr öllum áttum og fyllti húsið. Leiksýningin tókst það vel að leikhúsgestir hvöttu leikara og leikstjóra til að halda áfram með þessa sýningu og gefa fleiri áhugamönnum um leiklist tækifæri til að njóta þessarar veislu sem leikfélagið M.A.S bauð uppá þennan haustdag.
Ingólfur Árnason leikstjóri.
Ingólfur hefur verið leikstjóri leikfélagsins frá árinu 2001.
Ingólfur Árnason útskrifaðist frá Ítalska leiklistarháskólanum Accademia Nazionale D’Arte Drammatica – Silvio D’Amico í Róm árið 1999, sem leikstjóri með sérhæfingu í óperu-uppsetningum. Hann hefur unnið sem aðstoðarmaður leikstjóra við óperuhúsin í Róm og Palermo. Hann er einn af stofnendum Ítalska leiklistarhópsins La Corte in Viaggio og leikstýrði fyrstu uppsetningu á Karíus og Baktus eftir T. Egner á Ítalíu.
Ingólfur hefur leikstýrt óperunum Rakarinn í Seviglia eftir Rossini, Brúðkaup Fígarós eftir Mozart og Apótekarinn eftir Haydn hjá Íslensku óperunni og starfar núna sem fræðslustjóri Íslensku óperunnar. Einnig hefur hann leikstýrt nokkrum útvarpsleikritum hjá útvarpsleikhúsinu og var tilnefndur til Grímunar 2006 fyrir leikritið Ómerktur ópus í C-moll. Ingólfur er formaður leikhópsins M.A.S. Einnig hefur Ingólfur leikstýrt leikritinu Stræti eftir J. Cartwright hjá Nemendaleikhúsi LHÍ og leikritinu Ráðalausir menn eftir Siguringa Sigurjónsson hjá leikópnum Ráðalausir menn.
Hvað segir Ingólfur um leikfélagið M.A.S.?
Leikfélagið M.A.S. hefur vaxið listrænt séð á undraverðum hraða. Það er orðið markmið okkar að gera kröfur um eins mikla atvinnumennsku og hægt er miðað við aðstæður, þar sem hver og einn verður að vera virkur þátttakandi og ytri mörkin reynd til hins ýtrasta.
Styrkur M.A.S. liggur í hópnum og þeirri ósk ... eða þrá ... eða þörf þeirra að vinna og læra sem mest um list leikarans, eða ef hægt er að kalla það Iðn leikarans. Leikarahópurinn gerir kröfur um krefjandi verkefni og vilja vera virkir þátttakendur í efnistökum og úrvinnslum á þeim verkefnum sem við veljum. Leikhópurinn hefur þörf fyrir að takast á við meira krefjandi verkefni og láta reyna á ytri mörk sín og halda þannig áfram að vaxa sem leikarar, listamenn, og sem manneskjur.
Leikfélagið M.A.S. er sterkur hópur ólíkra leikara sem hafa það að markmiði að gera gott og skemmtilegt leikhús.
Eins og staðan er í dag er ekki hægt að tala um hvert við stefnum heldur hvernig við þróumst. M.A.S. er orðið að óstöðvandi afli leikhúsmanna sem vilja þróa og vinna að list sinni.