Leikfélagið MAS var formlega stofnað á vormánuðum 2003 og er aðili að Bandalagi íslenskra leikfélaga. Félagið hefur þó verið starfandi frá árinu 1999, þá nefnt Leikhópur Ásgarðs og sett upp eina sýningu á ári.
Í byrjun árs 1999 fengum við í Ásgarði góðan gest. Það var sænsk kona sem heitir Nina Norén. Hún er leikkona og leikstjóri og henni tókst auðveldlega að smita okkur með leiklistarbakteríunni. Í nokkrar vikur æfði 8 manna hópur með henni leikþátt byggðan á sögu Göethes, Ormurinn græni og liljan fagra, og endaði með því að sýna hann fyrir vini og kunningja í húsi ÍTR við Fríkirkjuveg. Þetta þótti okkur alveg óskaplega skemmtilegt og alveg sjálfgefið að halda áfram að vinna með leiklist í einhverju formi. Nina lýsti áhuga á að koma aftur og setja upp allt leikritið með okkur. Allir voru spenntir. Svo fórum við til Svíþjóðar um sumarið og heimsóttum auðvitað Ninu í Lundi. Þar voru þessar hugmyndir ræddar áfram og Nina ætlaði að koma um haustið og halda áfram þar sem frá var horfið. Af því varð þó því miður ekki þar sem Nina veiktist.
En við dóum ekki ráðalaus. Það sama haust kom til starfa við Waldorfskólann í Lækjarbotnum nýr söngkennari, Inga Björk Ingadóttir.Við fengum hana til að vinna með lítinn hóp frá Ásgarði tvisvar í viku með söng og leiklist. Hópurinn setti upp leikþátt úr Hobbitanum eftir J. R.Tolkien og sýndi hann í Hinu Húsinu. Eftir það vorum við beðin um að sýna leikþáttinn aftur og þá fyrir hóp erlendra gesta sem hér voru staddir til að kynna sér menningarstarfsemi fatlaðra á Íslandi. Það er skemmst frá því að segja að þar á meðal var finnsk kona sem bauð okkur að koma til Finnlands og sýna þar. Við sóttum um styrk til að fjármagna slíka ferð og hann fékkst. Inga Björk hélt til náms um haustið og gat þar af leiðandi ekki haldið áfram að sjá um leikhóp Ásgarðs.
Það er nú alltaf svo að ef einhver góður hættir kemur annar ekki síðri í staðinn. Við vorum svo heppin að fá til liðs við okkur leikstjóra að nafni Ingólf Árnason. Ingólfur var nýkominn heim frá námi á Ítalíu þar sem hann útskrifaðist sem leikstjóri frá Ítölsku leiklistar akademíunni. Hann byrjaði strax að vinna undirbúningsvinnuna að nýju leikriti. Eftir miklar bollaleggingar um hvaða leikrit ætti að sýna í Finnlandi ákváðu strákarnir að setja upp Hamlet og allir starfsmenn Ásgarðs tóku þátt í sýningunni á einn eða annan hátt. Ingólfur varð strax mjög spenntur og áhugasamur um þetta verkefni og hann hefur sýnt að hann er uppspretta af hugmyndum og lausnum. Undirbúningur gekk mjög vel þannig að allur hópurinn fór til Finnlands um haustið og Hamlet var sýndur á nokkrum stöðum þar.
Þær sýningar sem Ásgarðshópurinn hefur sett upp frá árinu 1999 til dagsins í dag eru:
1999: Ormurinn græni og liljan fagra eftir Goëthe. Þrjár sýningar fóru fram í Geysis húsinu sem var þá á vegum Hins hússins. Leikstjóri var Nina Norén.
2000: Leikþáttur úr Hobbitanum eftir Tolkien. Leikfélagið sýndi þetta verk utandyra uppí Lækjarbotnum og einnig í Geysishúsinu fyrir erlenda gesti sem hér voru staddir. Leikstjóri var Inga Björk Ingadóttir.
2001: Hamlet eftir William Shakespeare. Í fyrsta skiptið var farið með sýningu frá leikfélaginu í leikhús því með góðra vina hjálp tókst að fara með leikritið í Borgarleikhúsið og var sú upplifun sem vítamínsprauta fyrir alla þá sem að leikfélaginu komu. Um sumarið fór hópurinn til Finnlands með leiksýninguna og sýndi hana á nokkrum stöðum. Leikmynd og búningar voru mjög skemmtileg þar sem aðalleikararnir voru með leðursmiðssvuntur á sér en Hamlet var með smiðsbelti á sér. Sem aðal leikmynd var notast við fimmtán stórar bláar og hvítar regnhlífar. Ófelía var smíðuð sem strengja brúða og höfuðkúpan sem Hamlet ræddi við um nóttina var einnig smíðuð úr við í Ásgarði. Leikstjóri var Ingólfur Árnason.
2002: Skírnismál úr Hávamálum. Þetta var samstarfsverkefni leikhópsins og Waldorfskólans í Lækjarbotnum. Leiksýningin var sýnd á Broadway í tengslum við hátíðardag Ásgarðs og var félagsmálaráðherra heiðursgestur. Öll tónlist var flutt af starfsmönnum Ásgarðs og nemendum Waldorfskólans. Þessa sýningu var farið með til Svíþjóðar og hlaut hún mjög góðar viðtökur. Leikstjóri var Ingólfur Árnason.