Góð stemming á jólamarkaði Ásgarðs
11 desember 2009
Jólamarkaður Ásgarðs var haldinn síðastliðinn laugardag. Mikill fjöldi fólks lagði leið sína í Álafosskvosina. Eins og í fyrra fór jólasalan fram í smíðaverkstæði Ásgarðs (bröggunum) og þar gátu allir, stórir sem smáir fundið eitthvað fallegt fyrir sig og sína. Veitingasalan var einnig á sínum stað, þar sem heita súkkulaðið og kökurnar hurfu ofaní gesti.   Salan fór frammúr björtustu vonum og óhætt er að segja að starfsmenn hafi verið glaðir og þreyttir eftir dagsverkið.

Starfsfólk Ásgarð þakkar öllum vinum og velunnurum fyrir frábæran stuðning og hlýhug og óskar öllum gleðilegra jóla