|
 |
|
14 febrúar 2008 |
 Hið árlega þorrablót Ásgarðs var haldið í hátíðarsal okkar þann 14 febrúar. Óhætt er að segja að afar vel hafi tekist til. Helga og Óskar buðu uppá hefðbundið hlaðborð með pungum og kjömmum, hákarli og hangikjöti. Allir tóku vel til matar síns og borðuðu einum disk of mikið. Eftir matinn var sungið hástöfum og áður en því lauk birtist Hörður Torfason með gítarinn sinn og tók nokkur vel valin lög við góðar undirtektir viðstaddra. Að engum ólöstum er þó óhætt að segja að starfsmaður Ásgarðs, Guðjón Árnason hafi stolið senunni þegar Hörður spilaði og þeir sungu saman "Guðjón bakvið tjöldin", enda er Guðjón ávallt fullur af eldmóði og lét þetta tækifæri ekki renna sér úr greipum. Takk fyrir okkur Hörður og Guðjón... !
|
|