Laugardaginn 6. desember frá 12:00 til 17:00 mun Handverkstæðið Ásgarður vera með sinn árlega jólamarkað í húsnæði sínu að Álafossvegi 24 í Mosfellsbæ. Allar leikfangalínur Ásgarðs verða til sýnis og sölu, einnig verða
kaffi / súkkulaði og kökur til sölu gegn vægu gjaldi. Góðir gestir líta í heimsókn til okkar og að þessu sinni mun harmonikkuleikarinn Hjálmar Pálsson skemmta gestum með nokkrum lögum Garðar Jökulsson listmálari hefur málað fallega mynd sem hann gaf Ásgarði og verður hún til sölu, en þeir sem vilja eignast myndina geta lagt inn tilboð í myndina á meðan jólamarkaðurinn stendur.
Við í Ásgarði vonumst til að sem flestir sjáið sér fært að koma og kynnast persónunum á bak við okkar fallegu leikföng og samtímis gæða sér á ljúffengum kökum og súkkulaði með rjóma.
Látið sjá ykkur.
Jólakveðja frá starfsmönnum Ásgarðs