Skemmtilegur Jólamarkaður Ásgarðs
10. desember 2008

Laugardaginn 6. desember var árlegur jólamarkaður Ásgarðs haldinn. Í þetta sinn breyttum við til og vorum með söluna á smíðaverkstæðinu (bragganum) okkar en kaffisöluna í salnum. Óhætt er að segja að allt hafi gengið eins og í sögu. Fjöldi fólks lagði leið sína í kvosina, fékk sér veitingar, verslaði jólagjafir, spjallaði og hlustaði á ljúfa harmonikkutónlist og jólasöng. Okkur fannst sérlega gaman að hafa söluna á verkstæðinu okkar og þannig verður það áreiðanlega í framtíðinni. Okkur í Ásgarði langar að þakka öllum vinum og velunnurum Ásgarðs fyrir stuðninginn og hlýhuginn og óskum öllum gleðilegra jóla

                                             Starfsfólk Ásgarðs