
Óhætt er að segja að starfsfólk Ásgarðs hafi mætt til vinnu í morgunn með bros á vör. Ásgarður hlýtur Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins 2009. Þetta er mikill heiður og viðurkenning fyrir okkur hér í Ásgarði og við erum varla farinn að átta okkur á þessu ennþá. Í verðlaun var innrammað viðurkenningarskjal, forláta glerskúlptúr og svo ein milljón króna... svaka stór ávísun ..vá !
Starfsfólk Ásgarðs þakkar Fréttablaðinu kærlega fyrir sig og horfir björtum augum til framtíðar.