ICE-2007 Menningar og Listahátíð
21.nóvember 2007
Menningar og Listahátíðin ICE2007 verður haldin í Liverpool dagana 30 nóv. til 2 des. 2007. Tilefnið er 800 á afmæli Liverpool borgar og er þessi hátíð framlag íslendinga af því tilefni. Áhersla verður lögð á hina íslensku víkinga-arfleifð og tengingu Liverpool við hafnir norðursins. Margt verður til að gleðja augað, Matur, Bíó, Hönnun, Bókmenntir, Tónlist, svo eitthvað sé nefnt.

Okkur hér í Ásgarði er heiður og ánægja að segja frá því að handverk frá okkur var valið til sýningar á ICE-COOL hátíðinni og erum við handviss um munir okkar eigi eftir að gleðja augu margra gesta.

Við bendum á nánari upplýsingar á síðunni   www.ice07.org