Ásgarður var stofnaður 1993 og hefur starfsleyfi frá Félagsmálaráðuneytinu sem verndaður vinnustaður. Þar starfa nú 28 þroskaskertir einstaklingar ásamt 7 verkstjórum.
Ásgarður er vinnustaður sem hefur metnað til að vinna með og þroska hinn manneskjulega þátt vinnunnar. Í því felst m.a. að framleiðslan er löguð að getu hvers og eins, og honum hjálpað við að ná valdi á hugmyndum og verkfærum og vinna með þau. Sem sagt, að taka þátt í sköpunarferli frá hönnun að endanlegri útkomu. Þetta veitir einstaklingnum sjálfstraust, skerpir vilja hans og eykur þolinmæði.
Þau faglegu markmið sem Ásgarður hefur sett sér eiga rætur í uppeldiskenningum Rudolfs Steiner. Þær felast meðal annars í því að ekki er litið á fötlun sem vandamál heldur sem möguleika og að í hverri manneskju sé heilbrigður kjarni sem unnið er með. Þannig er reynt að aðstoða fatlaðan einstakling við að vinna með fötlun sína, til að hæfileikar hans njóti sín sem best.
Á hverjum morgni áður en vinna hefst syngjum við. Það er sérlega skemmtilegt að syngja og þó að við séum allir hálf laglausir erum við með góðan grunntón. Það hefur sýnt sig að þetta hjálpar okkur að anda út áhyggjum hversdagsins sem við kunnum að bera með okkur í vinnuna, og byggja þess í stað upp glaðvært og afslappað andrúmsloft.
Frá upphafi hafa starfsmenn Ásgarðs lagt áherslu á að hanna og þróa einföld, sterk og skemmtileg leikföng sem eiga sér samsvörun í íslenskum þjóðháttum. Hvort sem um er að ræða sjávarútveg, landbúnað, þjóðsögur eða ævintýri. Við vinnum eingöngu með náttúrulegan efnivið.
Á trésmíðaverkstæðinu (Bragganum) eru smíðuð leikföng, skúlptúrar og húsbúnaður, svo eitthvað sé nefnt. Það er mikilvægt að barnið sem leikur sér með leikfangið geti líka tekið þátt í sköpuninni. Ef leikfangið er einfalt að gerð, gefur það hugmyndaflugi barnsins möguleika á að "breyta" hesti í grenjandi ljón án þess að smáatriðin séu að þvælast fyrir því. Í einu leikfangi geta því leynst mörg ævintýri, bæði fyrir þann sem hannar leikfangið og einnig fyrir þann sem leikur sér með það.
Í listasmiðju Ásgarðs er unnið með tré, ull, skeljar, bein, horn, leður o.fl., og úr verða ýmiss konar munir, bæði leikföng, listmunir og skartgripir.
Í Ásgarði er sko margt brallað. Við slípum og sögum, litum og lökkum, borum og pússum, löbbum og leikum, vefum og tálgum, og teflum auðvitað líka .........